14.1.2008 | 23:53
Óreiða.
Æ, hvað ég yrði lélegur bókasafnsfræðingur. Mér datt í hug að henda inn hérna spurningum sem ég samdi fyrir Drekktu betur pub-quizið fyrir nokkru. Auðvitað hafði ég ekki vistað lokaútgáfuna á réttum stað. Hún varð eftir á vinnutölvunni sem er líklega búið að "strauja" núna. Óreiðan vinnur alltaf að lokum. Ojæja, ég verð líklega spyrill aftur á næstu mánuðum og reyni þá að muna eftir að henda keppninni inn. Annars náðum við Formaðurinn ágætum árangri á tímabili, vorum t.a.m. tvisvar sviknir um bráðabana vegna dómaraskandals. Annað skiptið ætlaði Formaðurinn að vaða í spyrilinn enda ekki á hverjum degi sem hann fær ekki rétt fyrir Bítlaspurningu. Síðan þá hefur okkar ástkær formaður alltaf mætt í bol með áletruninni "Harrison var 17 í Hamborg!".
Þar sem ég svík sauðtrygga lesendur um spurningarnar mínar ætla ég í sárabætur að koma með eina sem var síðasta föstudag. Það er nefnilega ekki á hverjum degi sem menn dúkka upp með stærðfræðiþraut í Drekktu betur, enda "krádið" ekki beint raunvísindasinnað. Spurningin var eitthvað á þessa leið:
Fjórum hlutum, A, B, C og D er pakkað í fjóra kassa, einum í hvern, þannig að ekki er hægt að greina þá sundur. Síðan fær hópur fólks að giska á hvaða hlutur er í hvaða kassa. Af 123 þátttakendum eru 43 ekki með neina ágiskun rétta, 36 giska á einn hlut réttan og 34 ramba á tvo rétta hluti. Hve margir giska á þrjá og fjóra rétta hluti?
Athugasemdir
Má ég svara?
Sverrir...aka Formaðurinn (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 16:20
Ef þú svarar þessu þá svara ég næstu Bítlaspurningu, þitt er valið.
Stefán Freyr Guðmundsson, 15.1.2008 kl. 17:42
Ja, miðað við árangur minn í Bítlaspurningum hingað til þá gæti það varla orðið svo slæmt.
Sverrir...aka Formaðurinn (IP-tala skráð) 16.1.2008 kl. 11:01
Ég hefði giskað á 3 rétta.... pottþétt, ég er nokkuð góður í svona giskum, þannig að þú ert kominn með einn allavega. Hvað eru svo menn að hverfa til Norge að horfa á liðið "okkar" tapa, þegar þeir geta tapað jafn konunglega hérna heima í skvassi?
Árni Björn Skvassséní (IP-tala skráð) 19.1.2008 kl. 00:22
Whaaaat???? (lesist með rödd Moe Szyslak)
Davíð (IP-tala skráð) 19.1.2008 kl. 21:18
Ef þú hefðir giskað á þrjá rétta, hefði þá fjórða giskið ekki sjálfkrafa orðið rétt? - Og ég tapa aldrei, endurtek aldrei, fyrir þér í skvassi.
Stefán Freyr Guðmundsson, 23.1.2008 kl. 01:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.